sunnudagur, maí 14, 2006

Veruleikafirring

Að tala við vinkonu mína frá Hollandi sem ég bjó með á Ítalíu á msn:

Ég: “Nei hæ! Hvar í heiminum ertu stödd núna?”
Vinkonan: “Ég er í Ísrael”
Ég: “Vá en spennó, þú ert nú meiri ævintýramanneskjan”
Vinkonan: “Já komdu í heimsókn”
Ég: “Hvar í Ísrael ertu?”
Vinkonan: “Ég er í Netanya”

Googla upp Netanya og sé að þar líkt og í Tel Aviv hafi verið eitthvað um sprengingar

Ég: “Hvað ertu að gera þarna, er öruggt að vera þarna”
Vinkonan: “Hvar ert þú?”
Ég: “London”
...

(Nú er komin upp sú hugmynd að við skötuhjú heimsækjum hana þegar skóla líkur...enda lengi langað að skoða Jerúsalem og Dauðahafið).

2 Innlegg:

Blogger Nielsen sagði...

Clubbing in Tel Aviv hefur lengi, lengi, lengi verið draumur minn.
Vona að þið gefið ykkur nægan tíma til að stunda pöbbana innan um sprengingarnar!

6:33 f.h.  
Blogger sylvia sagði...

Já, kemuriggi bara með?

11:50 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home