sunnudagur, apríl 16, 2006

Að vera B týpa


Stundum öfunda ég A týpur. Heimurinn snobbar fyrir A týpum. Það þykir mjög fínt að vera A týpa. Því fyrr sem fólk vaknar því meiri dyggð er yfir því. Það að einhver hafi vaknað fyrir sjö og farið í sund áður en hann hafi farið í vinnuna gerir hann reffilegri yfir daginn. Eða ef sá hinn sami fór ekki í sundið heldur vaknaði kl 6 til þess að koma saman glærusjóvi sem sýna átti eftir hádegi með samstarfsfélögunum.

Það hefði nú ekki þótt par fínt ef fyrrnefndur hefði vakað langt fram á nótt til þess að klára þetta. Það er ómennska. Því fólk sem vinnur frameftir er í einhverskonar stjórnleysi. Sá sem vaknar, er hafinn yfir það að vera þreyttur og hefur fullkomna sjálfstjórn.

Við Kjartan erum bæði B týpur. Það væri hrikalegt ef annað okkar væri A og hitt B. Sérstaklega þegar að box með rúmum í vegg eru annars vegar. En þegar við erum námsmenn og þurfum ekki að mæta t.d. í tíma þá snýst sólarhringurinn við með tilheyrandi samviskubiti.

Já. Það er bara nett samviskubit í því að vakna kl 12 eða jafnvel 13 þegar fólk á að vera að læra. Um leið og maður vaknar hugsar maður til A týpnanna sem eru ferskar í bragði búnar að læra síðan gvuð má vita hvenær. Þetta veldur því að morgunmaturinn/hádegismaturinn er gjarnar brauðsneið + slatti af kaffi yfir tölvunni. Maður leyfir sér einn bloggrúnt en helst ekki of lengi. Nú svo hefst lestur og skriftir. Það er varla að maður taki pásu því þær á maður ekki inni ef maður vaknar svona seint. Einungis A týpur mega taka pásur. Svo er það kvöldmaturinn sem að er í raun kannski á B mælikvarðanum barasta hádegismatur. Þá tekur kaffi, lestur og skriftir....framm á rauða nótt...af því að maður vaknaði svo seint.

8 Innlegg:

Blogger Unknown sagði...

Staðreynd: besti tími sólarhringsins er á milli 12 og 2 á nóttunni.
Þetta vita bara B týpur.

10:17 e.h.  
Blogger sylvia sagði...

Já! Heyr Heyr!

Það er korter í þetta;)

10:47 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

hahah! ég er algjör A týpa og ég get alveg öfundað B týpur, t.d. fyrir að geta framkvæmt nokkuð yfir höfuð eftir kvöldmat (sem er auðvitað á sannkristnum tíma hjá okkur A týpum, á slaginu kl.19)

Bestu kveðjur af klakanum.

Knús, Helga Guðrún

2:54 e.h.  
Blogger Sif sagði...

Ég er A týpa líka en Arnar er B og það er mjög erfitt að samræma þetta tvennt get ég sagt ykkur!

Besti tíminn er milli 9 og 12 á morgnanna, þá kem ég mestu í verk!

2:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er svo mikið síðasta öld að vera A-týpa.

Laxness gerði mikið úr því að vera A-týpa og grobbaði sig af því í tíma og ótíma. Ég held að þar hafi hann verið að stæla Hemingway. Samt læðist alltaf sá grunur að mér að báðir hafi verið að ljúga til um þetta.

2:51 e.h.  
Blogger sylvia sagði...

...já og til þess að lifa samkvæmt þessu snobbi sínu á A-týpum (jafnvel komið af stælingum frá Hemingway) skrifaði hann standandi...örugglega bara til þess að geta haldið sér vakandi.

4:29 e.h.  
Blogger �engill sagði...

Og hann skrifaði vitlaust í þokkabót!!! ;)

8:26 e.h.  
Blogger Unknown sagði...

www0730

prada shoes
moncler uk
red bottom shoes
canada goose jackets
converse shoes
canada goose jackets
adidas yeezy
michael kors outlet online
canada goose
michael kors outlet








1:43 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home