föstudagur, apríl 14, 2006

Dymbilvikan...


…Er víst hugsuð sem tími íhugunar og hugleiðslu fyrir þau okkar sem játa kristni. Hafi ég haft fyrirætlanir um slíkt þá fóru þær algerlega út um þúfur þegar ég komst yfir disk William Shattners “Has Been” og fyrsta lag plötunnar fór í gang.

Lagið er útgáfa af nýklassíkinni “Common People” með Pulp. Hversu skemmtilegt er að heyra 72 ára gamlan fyrrverandi leikara úr Star Trek syngja þetta lag? Sennilega óendanlega.

Þetta mun fara í safn þeirra laga sem hafa það göfuga hlutverk að halda mér síkátum á tímum þar sem ytri aðstæður draga úr eðlislægri glaðværð minni. Með ytri aðstæðum á ég við hluti eins og próflestur og skrif langra ritgerða.

Fleiri lög á þessum lista eru:

1. Einn Dans Við Mig. – Hemmi Gunn.

2. Your Boyfriend is a Really Nice Guy. – David Saw.

3. Make Someone Happy. – Jimmy Durante.

4. Somebody´s Watching Me. –Rockwell.

5. Right Here Right Now. – Fatboy Slim.

Síðasta lagið þarf ég reyndar að heyra í ákveðnu samhengi. Nánar tiltekið þarf það “hér og nú” sem lagið skírskotar til að vera á Highbury Stadium í London.

6 Innlegg:

Blogger Unknown sagði...

Best að láta vita að ég er í sama landi og þið. Er í Oxford að heimsækja móður mína yfir páskana. Fer heim á þri.

10:20 e.h.  
Blogger sylvia sagði...

Hei hei snilld....kemuru eitthvað við í London áður en þú flýgur af landi brott?

10:24 e.h.  
Blogger Unknown sagði...

Ekkert planað en ég flýg frá Heathrow á þriðjudagskvöld.
Gleymdi auðvitað hleðsutækinu fyrir símann heima þannig að ég veit ekki hvort ég verð í símasambandi. Væri afar afar gaman að sjá ykkur bæði tvö.

11:20 e.h.  
Blogger Nielsen sagði...

Jidúddamía!

Þessi diskur hljómar stórkostlegur. Hvaða önnur lög hljóma þarna? Einhverjar rómanz-ballöður måske???

Verð gjörsamlega einhvern veginn að komast yfir þetta.

8:45 f.h.  
Blogger jennahoagland sagði...

Instead, you will need to I can't do Snapchat Login in Android review one of Snapchat's e-mails to you. Visit here Click the hyperlink "Business Manager" snapchat online login to access Snapchat's Snapchat Sign In Ad Manager dashboard.

10:33 f.h.  
Blogger yanmaneee sagði...

golden gooses
jordan 12
longchamp handbags
lebron 11
nike sneakers for men
longchamp
kd 11 shoes
nike 97
air max 2019
michael kors outlet

11:19 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home