mánudagur, nóvember 21, 2005

Til heiðurs boxinu.



Ég vil fyrirbyggja misskilning: ég hef ekkert á móti mánudögum. Mér finnst þriðjudagar og miðvikudagar fínir. Og margir af mínum bestu dögum eru fimmtudagar og föstudagar.

Engu að síður verður að segjast að ég er almennt betur fyrirkallaður um helgar heldur en á virkum dögum. Fyrir því eru ýmsar ástæður, sem óþarfi er að fara út í náið. Í stuttu máli tengjast þær svefni, tíma og mat.

Helgin sem leið var meðal annars nýtt til að heimsækja Tate Museum of Modern Art. Það var sannarlega vel við hæfi enda var aðalsýningin á safninu uppsetning Rachel Whiteread á 14.000 hvítum kössum (boxum) í túrbínusal safnsins. Grípum niður í sýningarskrá verksins:

,,The form of a cardboard box has been chosen because of its associations with the storage of intimate personal items and to invoke the sense of mystery surrounding ideas of what a sealed box might contain.”

Aldrei hafði það hvarflað að mér að boxið okkar gæti verið sveipað dulúð hugmynda um hvað væri inni í því. Mér líður eins og það hafi stækkað.



3 Innlegg:

Blogger Nielsen sagði...

Frabaert! Frabaert!
Tetta er storkostlegt safn :)

7:17 f.h.  
Blogger sylvia sagði...

hehe já sama hér... ég sönglaði í hausnum litlir kassar...litlir kassar...litlir kassar og allir eins

4:37 e.h.  
Blogger KjartanB sagði...

Ef einhver lesandi þessarar síðu skilur nútímalist þá má hann gefa sig fram núna.

6:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home