mánudagur, október 10, 2005

"You cannot go naked in the swimmingpool"

Bretar og aftur Bretar. Ofurkurteisir og skrifræði er þeirra vopn til þess að losna við umkomulausa námsmenn frá öðrum löndum. Ég held að ég komist ekki hjá því að tileinka mér breskan hreim til þó það væri ekki nema bara til að fá betri þjónustu í þeim tilgangi að sleppa við einn tíunda af því skrifræði sem til er ætlast.

Ég fór í ræktina í gær. Fékk leiðsögn um staðinn. Svo kom hin klassíska og óumflýgjanlega spurning: Where are you from? I am from Iceland. Þið Skandinavar verðið nú að taka tillit til þess að þessi sundlaug hér... og hann benti á laugina er "mixed" sem þýðir að þið getið ekki farið nakin í sund.

Annars komst ég að því að tutorinn minn Indverjinn talar norsku. Aldrei hefði mér dottið í hug að ég hefði átt eftir að tala við Indverja á norsku. Ætli hann tileinki sér skandinavíska siði þegar hann fer í sund? Hvernig ætli sundvenjur Indverja séu?

3 Innlegg:

Blogger Sif sagði...

Ömurlegt að þú megir ekki fara í sund nakin. Veit að það verður það sem þið munið sakna mest við Ísland ;)

3:04 e.h.  
Blogger Nielsen sagði...

Ef tu ert Indverskur karlmadur ta att tu rett a ad fara i sund i spido! Tu att lika rett a ad maena a allt kvenkyns i kringum tig. Ef kvenkynsvera gengur framhja ter... afsakid, ef hvit kvenkynsvera gengur framhja ter att tu rett a tvi ad klipa i hana, eda flauta, eda bidja hana ad vera "vinur" tinn, eda bjoda henni far heim, eda spyrja hana hvad hun taki mikid fyrir... og svo framvegis.

Ef tu ert indversk kona, hefur tu ekki rett a neinu og att ad vera komin heim fyrir klukkutima sidan!!!

5:36 e.h.  
Blogger qqqqqq sagði...

0619jejeoff white nike
cheap nfl jerseys
adidas outlet
michael kors outlet
oakley sunglasses
asics shoes
adidas superstars
fitflops sale clearance
ralph lauren outlet
oakley sunglasses
nike air max 90
pandora

4:09 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home