föstudagur, maí 19, 2006

Eurovision


Ég spáði því að Silvía myndi komast áfram. Reyndist ekki sannspá í þeim efnum. Mikill spenningur myndaðist fyrir keppnina hér í International Hall, enda erum við með einn helsta Eurovision-fræðing þjóðarinnar á efri hæðinni sem mætti tveimur tímum fyrir keppni til að ganga úr skugga um að allt væri tengt og frágengið. Netið við sjónvarpið og svo hljóðið við tölvuna.

Síðan voru símarnir gerðir klárir fyrir kvöldið. Þeir sem hafa áskrift þurftu ekki að hafa frekari áhyggjur en minn sími (þessi flotti) er top up sími og sá ég til þess að næg inneign væri á honum til að geta greitt svona rétt rúmlega 8 atkvæði.


Nú svo hófst keppnin. Indverskur matur var snæddur með eðal svissnesku súkkulaði í boði Chris í desert. Ekki get ég sagt að dinnertónlistin hafi slegið í gegn, frekar vemmileg og klisjukennd. Þar sem við horfum á þetta án lýsingar (beint af netinu) þurftum við að reiða okkur á hann Árna sem kom með marga velútfærða fróðleikspunkta. Finnarnir áttu gott sjóv og nýttu möguleika sviðsins. Carola náði að sletta smá elegans í sín vemmilegheit. Silvía mætti svo í lokinn og þrátt fyrir ,,the biggest boooo in eurovision history” þá skilaði hún laginu með þokka. En, hvað um það, Evrópa er ekki tilbúin fyrir Silvíu þó að Silvía sé tilbúin fyrir heiminn.

Finnst svona írónía í því að við séum orðin of kúl fyrir keppnina og sendum grínlag. Erum síðan rosa súr yfir því að það komist ekki áfram, spurning um hvort við séum ekki að bíta í skottið á sjálfum okkur.

6 Innlegg:

Blogger KjartanB sagði...

Þegar Paulo De Carvalho hóf raust sína í laginu E Depois Do Adeus fyrir hönd Portúgal árið 1974 var hann grunlaus um að hann væri jafnframt að gefa herforingjastjórninni þar merki um að láta til skarar skríða í valdaráninu.

5:24 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Maður kemur nú ekki að tómum kofanum hjá Kjartani hvað varðar Eurovision, eins og kommentið hans ber með sér. Spurning hvort þeir hafi kafað í Eurovision-fræðin í MR liðinu í Gettu betur hérna í den. Annars er þetta bara svo ljómandi skemmtilegt að öðru leyti en því hvað Íslandi gengur bölvanlega - Okkar tími mun koma...

6:28 e.h.  
Blogger KjartanB sagði...

Það hlýtur nú eitthvað að gutla á manni þegar maður situr við fótskör meistarans í þessu...

Ég hef hins vegar grun um að þjóðin sé á leiðinni út í eyðilendur Sjúbídú-áranna aftur eftir hraksmánarlega útreið okkar undanfarin ár.

6:45 e.h.  
Blogger sylvia sagði...

Þessi er sá eini sem hefur skrifað um þetta af viti... bendi ég þá sérstaklega á lokaorðin

http://arts.guardian.co.uk/features/story/0,,1778091,00.html

Guardian svíkur engan þó svo að mogginn eigi það til

10:33 e.h.  
Blogger yanmaneee sagði...

yeezy boost 350
calvin klein outlet
christian louboutin
goyard bags
kyrie 5 shoes
christian louboutin outlet
louboutin
jordans
nike foamposite
nhl jerseys

11:06 f.h.  
Blogger xem lich am hom nay sagði...

Lich Van Nien 365
Xem Lich Am hom Nay
Xem ngay tot xau
Tu Vi Hang Ngay
Xem tuoi lam nha
Thuoc lo ban online
xem boi bai hom nay
12 cung hoang dao tu vi hang ngay
Xem tuoi vo chong
xem boi ngay sinh
nice day

2:13 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home