Skólavikan
Skólinn er byrjaður á fullu núna. Fyrstu ritgerðarskrifin í höfn. Búin að fá nýja tölvu og allt að gerast. Tölvan kom samt á sama degi og ég var að skrifa ritgerðina svo ég þurfti að sitja á mér og dást af nýju tölvunni meðan ég pikkaði á þá gömlu.

Boxið stækkaði óneitanlega þegar við Kjartan komumst að því að það væri skvassvöllur hjá okkur í kjallaranum. Við settum okkur í stellingar og Kjartan sagðist kokhraustur hafa spilað skvass áður og kynni reglurnar. Ég ákvað að treysta Kjartani enda þaulkunnugur heimi reglugerða og lagasetningar. En lögfræðingurinn mér til mikillar furðu hafði ekki unnið heimavinnuna nógu vel þannig að upphófst hið mesta stjórnleysi. Það er alveg ótrúlegt hvað reglur skipta miklu máli í íþróttum.
Við lærðum svo reglurnar og erum öll að koma til í skvassinu.

7 Innlegg:
Hvernig eru svo reglurnar? Ég er alltaf á leiðinni í skvass.
Eg er med skvassvoll inni a badi hja mer.
Spadinn er golfmoppan (tvi tad er enginn sturtukarmur) og boltinn er kakkalakkinn Sveinn!
Gvari ég skora á þig hér með í skvassi! Þegar þú kemur til London... þá kenni ég þér reglurnar í leiðinni;)
Ef þú lærir þær á undan þá máttu keppa við Kjarra því hann er betri en ég:)
Guðný... maður keppir ekki við þá sem hafa æft sig á Sveini!!! þú hlýtur að vera orðin mjög skotföst!!!
Ju, eg er svakalega skotfost ordin. Sveinn og family eru farin ad mynda doppott veggfodur inni a badi hja mer.
Er komin i Level 10, teir fjolga ser hratt.
Skvassreglurnar eru hér, með hlekkjum á ítarlegri reglur líka. http://www.ma.is/nem/99bara/namid/skvass.htm
Skvassreglurnar eru hér, með hlekkjum á ítarlegri reglur líka. http://www.ma.is/nem/99bara/namid/skvass.htm
...svo er nú alltaf hægt að brydda upp á hakkísakki... ef það er kalt úti í svkasssalnum:)
Skrifa ummæli
<< Home