miðvikudagur, október 11, 2006

Sydney, juð og áfengismennt

Nú skuldum við ferðasögu, heimkomusögu, og alskonar sögur frá mánaðarlöngu bloggfríi. Sydney er hin vænsta borg og Ástralir hið ágætasta fólk svo ekki sé meira sagt. Beinskeyttur og kaldhæðinn húmor þeirra átti vel við okkur skötuhjú. Ferðasagan verður látin liggja milli hluta á þessum vettvangi úr því sem komið er og áhugasamir hvattir til að mæta í heimsókn fyrir frekari ferðasögu og myndasyrpur. Fest voru kaup á hágæða myndavél í ferðalaginu og af því tilefni sægur af myndum tekinn, en af einhverjum tæknilegum orsökum rata þær ekki inn á bloggið.

Við skötuhjúin erum búin að koma okkur vel fyrir hér á Tómasarhaganum. Þvílík dásemd þessi gata. Um klukkan hálf níu á morgnanna koma til okkar syngjandi gestir, þrír spörfuglar, og setjast á fína “nýja” handriðið okkar. Við sem sagt tókum okkur til og juðuðum svalarhandriðið og lökkuðum svo með hammerite lakki á eftir. Erum nokkuð stolt af árangri erfiðisins.

Maður er nú samt ekki almennilega fluttur fyrr en eftir að hafa haldið nokkur matarboð, gott partý og fengið til sín næturgesti. Helgin mun vera helguð því síðastnefnda því Bríet og Breki munu flytjast til okkar annaðkvöld meðan frú Laila stórafmælisbarn og Manni skreppa til Barcelona. Matarboðin verða reidd fram hvert á eftir öðru á nánustu framtíð; viðveran í boxinu leiddi til æfingaleysis sem er núna verið að ráða bótum á.

Partýið góða var haldið um helgina og var þar margt góðra gesta. Urðarkötturinn átti þar stórleik með því að færa mér þá stórkostlegu bók Áfenga drykki eftir bruggunarverkfræðinginn og Humboldt-styrkþegann Hinrik Guðmundson (Dipl.Ing).

Formáli bókarinnar vakti sérstaka athygli en hann er svohljóðandi:

,,Íslendingar hafa ekki alizt upp við áfengismennt eins og aðrar hvítar þjóðir, sem hafa aldagamla sögu og reynzlu að baki sér í þessum efnum, enda ekki við því að búast af landfræðilegum orsökum og vegna erfiðra lífskilyrða.” (Guðmundsson, H. 1953. Áfengir drykkir: Öl, vín, brenndir drykkir og vínblöndur. Borgarprent Reykjavík. Bls. 5)

Bók Hinriks hefur að geyma ýmsan fróðleik. Hann segir til dæmis frá tilurð barsins og hanastélsins. Barinn kemur af orðinu “Barrier” því á landnámstíma Ameríku þegar - að sögn höfundar- “óskipulagðir innflytjendur af ýmsu tagi höfðu sjálfir á hendi framkvæmd persónuöryggis síns og vernd eigna sinna að miklu eða öllu leyti, þegar hnífar sátu laust í skeiðum og byssur réðu oft á tíðum úrslitum í samskiptum manna, þótti veitingarmonnum örugggara að hafa varnargirðingu fyrir framan veitingaborðið til þess að tryggja sér svigrúm til ganráðstafana, ef um óspektir eð áras var að ræða.” (Guðmundsson, H. 1953. Áfengir drykkir: Öl, vín, brenndir drykkir og vínblöndur. Borgarprent Reykjavík. Bls 71)

Leggur hann einnig ríka áherslu á að glösin séu kristaltær og ber þvi við að “lituð glös séu miskilningur.” Í niðurlagi bókarinnar leggur hann ríka áherslu á að menn fylgist með því áfengismagni sem það hefur innbyrt þar sem ½ - 1 klst getur liðið þar til menn verða varir við áhrif þess. Hann heldur svo áfram:

,,Þeir sem þrátt fyrir allt hafa ruglazt í ríminu og drukkið meira en þeir eru menn til að þola, geta reynt að styrkja sig á eftirfarandi:

Praire-oyster-cocktail
Takið cocktailglas og látið í það 1 matskeið af enskri sósu og 1 heila eggjarauðu, sem á að fljóta á sósunni. Stráið salti og papríku yfir, hellið 1 teskeið af edikið þar á ofan og fyllið síðan glasið með matarolíu. Drekkið úr glasinu í einum sopa og skolið niður með vatni.” (Guðmundsson, H. 1953. Áfengir drykkir :Öl, vín, brenndir drykkir og vínblöndur. Borgarprent Reykjavík. Bls 176)

20 Innlegg:

Blogger Rikey Huld sagði...

Þessi hressingardrykkur hljómar alls ekki svo vel - held að ég myndi bara drekka vatnið;)

3:23 e.h.  
Blogger sylvia sagði...

Já finnst einsog hann gæti tilheyrt ógeðsdrykk í 70 mín. Hefði sent hann inn ef sá þáttur væri enn við lýði.

7:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Frábært að heyra frá ykkur aftur! Ég hefði verið farin að hafa áhyggjur af því að þið væruð föst í kengúrumagapoka ef mamma hefði ekki sagt mér fréttir af ykkur eftir afmæli Lailu!
Keyptuð þið íbúð á Tómasarhaga eða er það bara tímabundið húsnæði?

7:10 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvað er ensk sósa?
-gvari

12:37 f.h.  
Blogger KjartanB sagði...

Gaman að sjá að enn eru einhverjir að lesa síðuna! Við ætlum nú að vona að Tómasarhaginn sé eitthvað meira en tímabundinn - erum a.m.k. með kaupsamning í höndunum. Þú verður nú að líta inn næst þegar þú kemur frá Sverige.

Ensk sósa? Ég segi bara "?".

12:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Já, ég vil gjarnan koma í heimsókn og stuðla þannig að því að þið náið að flytja almennilega inn! Þið munið líka að þið eruð ævinlega velkomin hingað til Uppsala ... þarftu ekki að koma til að halda sænskunni við?!

6:40 e.h.  
Blogger sylvia sagði...

Ætli ensk sósa sé HP sósa? Finnst hún eitthvað svo ensk og gæti trúað því að hún hafi verið komin fyrir 1953...ef samt ekki hugmynd.

Já Guðrún erum orðin matarboðsfær!!! Komið þið ekki um jólin???

1:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Velkomin heim. Alltaf gott að vita af góðu fólki í Vesturbænum. Maður kannski röltir við e-n tímann þar sem ég er nú alltaf að labba um hverfið þessa dagana.
Kv. Erla Kristín

8:39 e.h.  
Blogger KjartanB sagði...

Um að gera! Líttu endilega við sem fyrst; við hlökkum til að sjá þig.

9:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með Tómasarhagann, krakkar mínir. Þetta er yndisleg gata! Get vottað það ;)

En talandi um drykki... Þá dettur mér nú í hug ákveðinn fordrykkur, sem kenndur var við Ólaf Ragnar hérna um árið....

5:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Jú Silvía, ég held að um HP sósu sé að ræða. Enda er hún mjög líkleg til þess að koma einhvers konar neyðaratburðarrás af stað í líkamanum.

Það er spurning hvort ekki ætti að leggja þá pósitísku skyldu á alla gestgjafa að hafa hráefnin í styrkingardrykkinn til reiðu. Ég get allavega vel ímyndað mér að fólk eigi það til að gleyma því stöku sinnum að taka þau með sér á djammið.

3:24 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

meinti sylvia...

3:25 e.h.  
Blogger sylvia sagði...

Gott ef styrktardrykkurinn sé ekki nauðsyn eftir að Ólafur Ragnar hefur verið svolgrað niður.

Ég sé til þess að HP sósa verði til og með því í styrktartdrykkinn fyrir næsta partý. Hafsteinn þú mátt vera fyrstur til að smakka!

6:05 e.h.  
Blogger Skvísin sagði...

Mikið er nú gaman að fá ykkur heim :) Ég komst nú ekki í það skoða alla íbúðina í partýinu.. var upptekin við át og drykkju...

...Sjáumst í saumó

12:14 e.h.  
Blogger Nielsen sagði...

Nú held ég að ég sé búin að vera of lengi fjarri fósturjörðinni?
Hvað er HP sósa?

Gaman að þið eruð aktíf að nýju :)

1:26 e.h.  
Blogger sylvia sagði...

Tja...sko HP sósa var bara útumallt í bretlandi. Meira að segja var tekið fram að það mætti ekki fara með HP sósu með sér í handfarangri.

Hún er svona dökkrauð, eiginlega brún. Hef ekki smakkað hana.

2:11 e.h.  
Blogger 柯云 sagði...

2016-06-11keyun
adidas originals store
polo ralph lauren
louis vuitton bags
longchamp le pliage
michael kors outlet
coach outlet store online clearances
michael kors handbags
kate spade handbags
kobe shoes 11
michael kors handbags
cheap louis vuitton handbags
jordan shoes
michael kors outlet clearance
oakley sunglasses
marc jacobs outlet
michael kors outlet online
cheap oakley sunglasses
true religion jeans
true religion jeans
hollister clothing store
louis vuitton bags
christian louboutin wedges
kate spade outlet
louis vuitton handbags
louis vuitton outlet stores
pandora jewelry
jordan 3 retro
rolex watches
tory burch flats
coach outlet online
ray bans
hollister clothing
true religion outlet
air jordan femme
nike store uk
coach factory outlet
oakley outlet
ray ban sunglasses
tory burch shoes

2:44 f.h.  
Blogger chenmeinv0 sagði...

huarache
fendi
pandora jewelry
michael kors canada
air max 95
the north face
adidas zx
louboutin
jordan shoes
bottega
2018.1.9xukaimin

3:38 f.h.  
Blogger yanmaneee sagði...

golden gooses
jordan 12
longchamp handbags
lebron 11
nike sneakers for men
longchamp
kd 11 shoes
nike 97
air max 2019
michael kors outlet

11:19 f.h.  
Blogger yanmaneee sagði...

supreme
balenciaga shoes
canada goose jacket
yeezy
jordan 6
yeezys
jordan shoes
adidas superstars
hermes handbags
off white

9:05 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home