sunnudagur, ágúst 14, 2005

Dórugæsun

Gærdagurinn var geggjaður. Viktoría og María Guðbjörg eiga hrós skilið fyrir góða skipulagningu! Dagurinn hófst á því að Dóra var sótt heim til sín og sett á mótorhjól og brunað út á flugvöll á Ísafirði. Hún lenti svo á Reykjavíkurflugvelli þar beið sjúkrabíll eftir henni... henni var þrykkt í bílinn tjóðruð niður og keyrð á bláum ljósum út á slökkvistöð þar sem við vinkonurnar biðum eftir henni. Þar var hún sett í reykköfun, upp í körfu og aftur á mótorhjól. Stelpan stóð sig mjög vel og sýndi mikið hugrekki.

Svo var það brunch í nauthólsvík þar sem Ratleikurinn hófst. Ég og Gréta undirbjuggum ratleik og viktoría lýsir honum mjög vel í details á síðunni sinni.
Síðan tók breikið við... ég væri alveg til í að læra að breika... allavegana náði ég freezinu og six stepinu í slómó. Sund. Sumarbústaður. Grill. Partý. Bókaklúbburinn stofnaður og eftirminnilegasta pottaferð ársins...svo ekki sé minnst á heimferðina. Þar sem við keyrðum á 30 km hraða með galopnar bílrúður með þrjá stóra ruslapoka hangandi út úr bílnum að leita að ruslatunnum. Það er búið að planta svona grænum spennustöðum út um allt á sumarbúsaðarlandinu á vatnsleysuströnd sem sverja sig í ætt við grænar ruslatunnur... okkur til mikillar mæðu.

3 Innlegg:

Blogger Nielsen sagði...

Var hinn frábærasti dagur.
Harðsperrurnar koma í veg fyrir hin ýmsu daglegu störf - eins og til dæmis að krossleggja fæturnar. En, nú þarf ég fisiklí að lyfta þeim með höndunum.
Breikgæinn var bara svo fjári-gúdd-lúkkín að maður varð að leggja sig alla í múvin.
Hvað segjum við um breikdans-performans í brúðkaupinu???
Hitað Dúddlís lengi lifi!!!

1:11 e.h.  
Blogger sylvia sagði...

Dúddlísið heitt og kalt...verðum að hafa eina með okkur í brúðkaupinu!!! Bókaklúbburinn á dúddlísins... not working.

Ég er til í breikmúv í brullaupinu... ég var svo heppin að taka þetta allt á vidjó þannig að ég get horft á múvin í slómó... og æft mig ;)

1:26 e.h.  
Blogger Viktoría sagði...

já djöfull var hann flottur - getum við ekki látið dóru hafa hann sem skemmtiatriði í brúðkaupinu - hún gæti jafnvel beðið tvibbana um að vera að dansa á bak við!!!! það mundi óneitanlega hleypta lífinu í bryllupið!!!!
Já og djöfull myndum við rúla ef við tækum múv - ég er ákveðin í að reyna aftur með freezið og snúninginn!!!! hvað hét þetta allt saman? bib co.. rock? hehehhe

2:55 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home